Amon Tobin
Amon Tobin, skírður Amon Adonai Santos de Araujo Tobin (Antônio Carlos Brasileiro de Almeida Jobim og Tom Jobim í Brasilíu), (7. febrúar 1972) er brasilískur tónlistarmaður. Tónlist hans er gefin út af breska útgáfufyrirtækinu Ninja Tune.
Ferill
breytaAmon fæddist í Rio de Janeiro í Brasilíu en fluttist til Evrópu á unglingsaldri og er sagður hafa búið í Portúgal og í Brighton á Englandi þar sem hann gaf út fjórar EP plötur undir nafninu Cujo áður en að fyrstu breiðskífunni „Adventures in Foam“ (1996) kom hjá Ninebar útgáfufyrirtækinu. Sama ár skrifaði hann undir hjá Ninja Tune og í kjölfarið fylgdu fjórar breiðskífur sem var öllum tekið vel af sífellt stækkandi hópi aðdáenda. Árið 2004 kom út diskur með upptökum af tónleikum með honum í Solid Steel röðinni. Næsta ár tók Amon nýja stefnu þegar hann samdi tónlistina við tölvuleikinn „Chaos Theory: Splinter Cell 3“ fyrir tölvuleikafyrirtækið Ubisoft sem einnig var gefið út hjá Ninja Tune.
Stíll
breytaTónlistarstíll Amon Tobins er einstakur mjög djass-skotinn og einnig eru töluverð suður-amerísk áhrif bossa nova, samba og batucada. Amon vinnur tónlist sína mestmegnis í hljóðgervlum og sækir hann efnivið sinn víða, m.a. notar hann búta úr öðrum lögum. Með ýmsum stillingum og breytingum á hljóðbútunum tekst honum að brengla og ummynda hljóð þannig að þau verða nær óþekkjanleg samanborið við upprunalegt hljóð.
Breiðskífur
breyta- Chaos Theory - Splinter Cell 3 Soundtrack (Ninja Tune, 2005)
- Solid Steel Presents Amon Tobin: Recorded Live (Ninja Tune, 2004)
- Out From Out Where (Ninja Tune, 2002)
- Supermodified (Ninja Tune, 2000)
- Permutation (Ninja Tune, 1998)
- Bricolage (Ninja Tune, 1997)
- Adventures in Foam (Ninebar, 1996) (sem Cujo) (endurútgefin, Ninja Tune, 2002)
Samvinnuverkefni/tónleikaupptökur
breyta- Peeping Tom (Ipecac, 2006) (breiðskífa með Mike Patton. Amon Tobin kemur fram í laginu „Don't Even Trip“.)
- Verbal Remixes & Collaborations (2003)
Smáskífur & EP-diskar
breyta- The Lighthouse (2005)
- Angel Of Theft (2004) (sem Player)
- Verbal (2002)
- East To West (2002)
- Slowly (2000)
- 4 Ton Mantis (2000)
- Like Regular Chickens (Danny Breaks & Dillinja Remixes) (1998)
- Pirahna Breaks (1997)
- Mission (1997)
- Chomp Samba (1997)
- Creatures (1996)
- The Remixes (1996) (sem Cujo)
- Curfew (1995) (sem Cujo)
Tenglar
breyta- Formleg heimasíða Amon Tobins
- Amon Tobin á Myspace
- Amon Tobin Póstlisti Geymt 14 maí 2006 í Wayback Machine
- Umboðsfyritæki Amon Tobins / Envision Management + Production Geymt 28 ágúst 2008 í Wayback Machine
- Amon Tobin: útgefið efni
- Formleg síða Amon Tobin hjá Ninja Tune
- Unofficial Complete Amon Tobin / Cujo Discography at pe7er.com
- Viðtal GameSpot vegna Chaos Theory leikjatónlistarinnar
Myndbönd
breyta- Myndbandið við Proper Hoodidge af Out From Out Where
- Myndbandið við Verbal af Out From Out Where
- Myndbandið við Slowly af Supermodified
- Myndbandið við 4 Ton Mantis af Supermodified
- Trailer #1 - forthcoming album in 2007
- Amon Tobin scores Hungarian Film, Taxedermia - Clip #1
- Amon Tobin scores Hungarian Film, Taxedermia - Clip #2
- Amon Tobin scores Hungarian Film, Taxedermia - Clip #3
- Short Interview Geymt 10 mars 2007 í Wayback Machine