Alfreð Clausen - Ágústnótt
Alfreð Clausen - Ágústnótt er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1953. Á henni syngur Alfreð Clausen lögin Ágústnótt og Vökudraumur með hljómsveit Josef Felzmann. Í hljómsveitinni voru auk Josef, Carl Billich, Ólafur Gaukur Þórhallsson og Jóhannes Eggertsson. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.
Alfreð Clausen - Ágústnótt | |
---|---|
78-snúninga hljómplata | |
Flytjandi | Alfreð Clausen, Josef Felzmann, Carl Billich, Óli G. Þórhallsson, Jóhannes Eggertsson |
Gefin út | 1953 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenskir tónar |
Lagalisti
breytaLögin
breytaLag Oddgeirs Kristjánssonar Ágústnótt er samið árið 1937. Það náði strax vinsældum sem þjóðhátíðarlag, en það var ekki fyrr en 1952, að lagið var gefið út á prenti. Í ritgerð Hafsteins Þórólfssonar um tónsmíðar Oddgeirs segir að lagið sé elsta þjóðhátíðarlagið sem reglulega sé sungið enn í dag.[1] Líklegt má telja að flutningur Alfreðs Clausen og hljómsveitar Josef Felzmann hafi aukið enn á vinsældir og útbreiðslu lagsins á sínum tíma.
Lag Jenna Jónssonar Vökudraumur fékk góðar undirtektir, þó það yrði ekki eins langlíft og Ágústnótt. Lagið fékk viðurkenningu í danslagakeppni SKT 1953 í flokknum „Nýju dansarnir”.[2]