Játvarður 7. Bretlandskonungur

Konungur Stóra Bretlands og Írlands (1901-1910), Keisari Indlands (1901-1910)
(Endurbeint frá Albert Edward)

Játvarður 7. (Albert Edward) (9. nóvember 18416. maí 1910). Játvarður 7. var konungur sameinaðs ríkis Stóra Bretlands og Írlands, breska samveldisins og auk þess keisari Indlands. Játvarður kom til ríkis 1901 eftir móður sína Viktoríu drottningu og hafði þá verið prinsinn af Wales í 60 ár. Játvarður stuðlaði að viðgangi samúðarsambandsins (Entente Cordiale) við Frakka og Rússa gegn Þríveldabandalaginu.

Skjaldarmerki Sachsen-Coburg-Gotha-ætt Konungur
Stóra-Bretlands og Írlands
og breska samveldisins
og keisari Indlands
Sachsen-Coburg-Gotha-ætt
Játvarður 7. Bretlandskonungur
Játvarður VII
Ríkisár 22. janúar 1901 - 6. maí 1910
SkírnarnafnAlbert Edward
Fæddur9. nóvember 1841
 Í Buckinghamhöll, London, Englandi
Dáinn6. maí 1910 (68 ára)
 Í Buckinghamhöll, London, Englandi
GröfÍ Kapellu heilags Georgs í Windsorkastala
Undirskrift
Konungsfjölskyldan
Faðir Albert prins af Saxe-Coburg og Gotha
Móðir Viktoría Bretadrottning
DrottningAlexandra frá Danmörku
BörnPrinsar og prinsessur:
  • Albert Victor
  • Georg V Bretakonungur
  • Louise, hin konunglega prinsessa
  • Victoria
  • Maud Noregsdrottning
  • Alexander

Játvarður giftist dóttur Kristjáns 9. Danakonungs, Alexöndru 10. mars 1863. Hún bar þá titilinn Prinsessa Alexandra Karolína María Karlotta Lovísa Júlía af Slésvík-Holstein-Sonderborg og Glúkksborg. Hún varð eftir það Prinsessa af Wales, og hefur borið þann titil lengst allra. Þau eignuðust sex börn, og þar á meðal George Frederick Ernest Albert sem síðar varð Georg V. Játvarður 7. lést í Buckingham-höll úr alvarlegu berkjukvefi (bronkítis). Á dánarbeði hans kom Prinsinn af Wales (síðar Georg V) og sagði honum að hestur hans „Witch of the Air“ hafði borið sigurorð á Kempton Park-veðreiðarvellinum. Við það svaraði hann: „Það gleður mig mjög“ og voru það andlátsorð hans.

Játvarður 7. var tengdur næstum því hverri einustu kóngafjölskyldu í Evrópu á sínum tíma, aðallega gegnum móður sína og tengdaföður, og var því oft kallaður „frændi Evrópu“.

Fyrirrennari:
Viktoría
Bretakonungur
(1901 – 1910)
Eftirmaður:
Georg 5.