Þuríður Backman (8. janúar 1948) er fædd og uppalin í Reykjavík og bjó þar uns hún fluttist með fjölskyldu sinni til Egilsstaða. Þuríður lauk námi við Hjúkrunarskóla Íslands, stundaði nám við Nýja hjúkrunarskólann og Norræna lýðheilsuháskólann. Vann við hjúkrun á Borgarspítalanum, heilsugæslunni í Reykjavík og á sjúkrahúsi og heilsugæslu á Egilsstöðum. Vann um nokkur ár sem fræðslufulltrúi Krabbameinsfélags Íslands á Austurlandi og sinnti tóbaksvörnum bæði í skólum og með námskeiðahaldi.

Þuríður Backman (ÞBack)
5. varaforseti Alþingis
Í embætti
2003–2007
2. varaforseti Alþingis
Í embætti
2007–2013
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
1999 2003  Austurlandskjördæmi  Vinstrihreyfingin - grænt framboð
2003 2009  Norðausturkjördæmi  Vinstrihreyfingin - grænt framboð
2009 2013  Norðausturkjördæmi  Vinstrihreyfingin - grænt framboð
Persónulegar upplýsingar
Fædd8. janúar 1948 (1948-01-08) (76 ára)
Reykjavík
Æviágrip á vef Alþingis

Þuríður hefur tekið þátt í pólitískum störfum allt frá því að hún var á lista Alþýðubandalagsins í Reykjavík til Alþingis árið 1978. Eftir að hún flutti austur á Hérað varð hún varaþingmaður fyrir Alþýðubandalagið árið 1991 og tók árlega sæti fyrir þann flokk á árunum 1992 til 1997 og sem óháður þingmaður 1998. Hún tók einnig þátt í bæjarmálapólitíkinni bæði í Reykjavík og á Egilsstöðum. Tók sæti í bæjarstjórn Egilsstaða 1990-98 og var forseti bæjarstjórnar síðara kjörtímabilið. Var stofnfélagi í Vinstrihreyfingunni grænu framboði 1999 og hefur setið á Alþingi síðan. Hún leiddi lista hreyfingarinnar i Austurlandskjördæmi það ár, var í 2. sæti við nýja kjördæmaskipan 2003 og er það einnig í komandi kosningum.

Þuríður er gift Birni Kristleifssyni arkitekt, hún á 3 börn og nokkur barnabörn. Foreldrar Þuríðar eru Ernst Backman íþróttakennari og Ragnheiður Jónsdóttir sjúkraliði.

Tengill

breyta