Ólafur Þór Hauksson
Ólafur Þór Hauksson (10. mars 1964) er íslenskur lögfræðingur og héraðssaksóknari. Áður starfaði hann sem sýslumaður á Akranesi og sem sérstakur saksóknari í kjölfar Bankahrunsins 2008.
Störf Ólafs sem sérstakur saksóknari
breytaÞann 13. janúar 2009 réð Björn Bjarnason, þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra, að höfðu samráði við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis, Ólaf sem sérstakan saksóknara í kjölfar bankahrunsins 2008. Ólafur veitti forstöðu rannsóknar- og saksóknaraembætti sem rannsakaði grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og kjölfar bankahrunsins, hvort sem það tengdist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga, og eftir atvikum var ætlað að fylgja rannsókn eftir með saksókn. [1]
Tengt efni
breytaTilvísanir
breytaTenglar
breyta- Ólafur Þór Hauksson verður sérstakur saksóknari; af Mbl.is
- Ólafur Þór Hauksson verður sérstakur saksóknari; af Vb.is[óvirkur tengill]
- Sláum skjaldborg um saksóknarann; af Eyjunni.is
- Viðtal við Ólaf Þór varðandi frumkvæði í rannsóknum; RÚV.is Geymt 22 mars 2009 í Wayback Machine
- Inn á hamfarasvæðið; pdf-skjal; af mbl.is