Áramótaskaup 1981
Áramótaskaupið 1981 er áramótaskaup sem sýnt var árið 1981 og var sýnt á RÚV.
Leikstjóri skaupsins 1981 var Gísli Rúnar Jónsson auk þess sem hann var aðalhöfundur. Skaupið gerist að stórum hluta í fréttasetti sjónvarpsins en einnig er fylgst með söngkeppni sjónvarpsins og ýmsu fleiru. Dolli og Doddi komu fyrst fram í þessu skaupi.[heimild vantar] Aðalleikarar skaupsins eru Randver Þorláksson, Bessi Bjarnason, Edda Björgvinsdóttir og Sigurður Sigurjónsson.[1]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Dagskráin um áramótin - Morgunblaðið“. timarit.is. 31.12.1981. Sótt 10. október 2023.