Viti
Viti er háreist, turnlaga bygging, með öflugum ljósgjafa efst. Í myrkri sjá skipstjórnarmenn ljósið og vita þá hvar land er. Hver viti hefur sitt ljóseinkenni, t.d. hvítur þríblossi með 25 sekúndna millibili. Þannig er hægt að gera sér grein fyrir hvaða vita er verið að horfa á frá sjó og staðsetja sig nánar út frá því. Siglingastofnun Íslands hefur umsjón með vitum á Íslandi.
Vitar eru gjarnan á annesjum, og stundum á skerjum, en vitar eru einnig hafðir á baujum á hafi úti. Áður fyrr voru sums staðar notuð vitaskip.
Radíóviti er viti sem sendir útvarpsbylgjur í stað ljóss og er notaður af flugvélum.
Vitinn í Faros telst eitt af sjö undrum veraldar.
Vitar á Íslandi
breytaFyrsti vitinn við strendur Íslands var byggður á Valahnúk á Reykjanesi árið 1878. Um aldamótin 1900 voru vitarnir 5 en uppbyggingu vitakerfisins í kringum landið lauk með byggingu Hrollaugseyjavita árið 1954.[1] Var vitavörður í sumum þeirra en í dag eru vitarnir mannlausir.
Í dag eru 104 vitar á landinu og 41 af þeim eru knúnir með sólarljósi. [2] Fyrsti vitinn í meira en 30 ár mun rísa á árinu 2017 við Sæbraut í Reykjavík. [3]
Bækur
breytaVitar á Íslandi: Leiðarljós á landsins ströndum 1878-2002. Siglingastofnun. 2002
Tenglar
breyta- Vitar á Íslandi Geymt 10 mars 2007 í Wayback Machine
- Siglingastofnun Íslands Geymt 15 júní 2009 í Wayback Machine
- Vitar og fiskimið við Ísland; grein í Sjómannablaðinu Víkingi 1977
Tilvísanir
breyta- ↑ Vitasaga Geymt 20 september 2017 í Wayback Machine Vegagerðin, skoðað 21. ágúst, 2017.
- ↑ Vitar Ferlir, skoðað 21. ágúst 2017.
- ↑ Fyrsti vitinn í meira en þrjátíu ár Rúv, skoðað 21. ágúst, 2017.