Verðlaun Jóns Sigurðssonar
Verðlaun Jóns Sigurðssonar hafa verið veitt árlega frá 2008 af Forsætisnefnd Alþingis á Hátíð Jóns Sigurðssonar sem haldin er í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Verðlaunin eru veitt einstaklingi sem unnið hefur verk sem tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau geta jöfnum höndum verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála. Eftirfarandi einstaklingar hafa fengið verðlaunin:
- 2008 - Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.
- 2009 - Erik Skyum-Nielsen prófessor og þýðandi.
- 2010 - Sören Langvad forstjóri, byggingarverkfræðingur.
- 2011 - Vigdís Finnbogadóttir fyrrv. forseti Íslands.
- 2012 - Pétur M. Jónasson prófessor, vatnalífræðingur.
- 2013 - Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari.
- 2014 - Bertel Haarder fyrrv. menntamálaráðherra Danmerkur.
- 2015 - Sigríður Eyþórsdóttir kórstjóri.
- 2016 - Dansk-Islandsk Samfund
- 2017 - Annette Larsen bókmenntafræðingur.
- 2019 - Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður.
- 2020 - Vibeke Nörgaard Nielsen rithöfundur og kennari.
- 2021 - Auður Hauksdóttir fyrrverandi prófessor í dönsku.