Víðidalstungukirkja
Víðidalstungukirkja er kirkja í Víðidalstungu í Víðidal. Bærinn stendur á tungunni milli Víðidalsár og Fitjár. Mestu kostir jarðarinnar til fornar voru uppgripaheyskapur og laxveiði í ánum.
Víðidalstungukirkja | ||
Víðidalstunga (17. júní 2007) Jóna Þórunn Ragnarsdóttir | ||
Almennt | ||
Prestakall: | Melstaðarprestakall | |
---|---|---|
Byggingarár: | 1889 | |
Arkitektúr | ||
Efni: | Timbur | |
Kirkjurýmið | ||
Sæti: | 100 | |
Kirkja staðarins var byggð árið 1889 en hún er úr timbri. Alls komast 100 manns á kirkjubekkina. Ásgrímur Jónsson málaði altaristöfluna árið 1916 en hún sýnir fjallræðuna.
Flateyjarbók var rituð í Víðidalstungu um 1400 en hún er ein stærsta og merkilegasta skinnbók sem varðveist hefur á Íslandi. Jón Hákonarson (f. 1350), bóndi á staðnum, lét skrifa bókina en talið er að 113 kálfsskinn hafi þurft til verksins.
Vídalínsætt átti Víðidalstungu í á 5. hundrað ár en af þeirri ætt var m.a. Páll Vídalín (1667-1727) lögmaður. Hann vann Jarðabók með Árna Magnússyni prófessor og handritasafnara.
Tenglar
breyta- Víðidalstungukirkja á kirkjukort.net Geymt 6 desember 2018 í Wayback Machine