The Other Economic Summit
The Other Economic Summit (TOES) voru toppfundir sem að áttu að þjóna því hlutverki að vera gagnrýnir á hina árlegu G7 toppfundi. Fyrsti fundurinn var haldinn 1984 og komu þar saman hagfræðingar, umhverfisverndarsinnar og aðrir sem létu sig mál samfélagsins varða. TOES varð á endanum einnig nafn yfir ýmsa svipaða fundi sem haldnir voru á næstu tveimur áratugum.[1]
TOES toppfundirnir
breytaFyrsti fundurinn var haldinn 1984 og var skipulagður af samtökunum New Economics Foundation og Right Livelyhodd Awards. Stefnan var tekin á að koma fram með aðra valkosti í þróunar og umhverfismálum.[2] Tilgangur fundana var að sýna fram á að hagkerfi heimsins gætu verið skipulögð a betri hátt. Fundirnir voru einnig gagnrýnir á G7 toppfundina fyrir að þeir gerðu sér upp að vera málsvari allra jarðarbúa. TOES krafðist þess að hagstjórn heimsins lyti frekar lýðræðislegri stjórn og stungið var upp á því að G-7 fundunum yrði skipt út fyrir fulltrúaskipað hagfræðiráð innan sameinuðu þjóðana.[3]
TOES voru haldnir frá 1985-1987 í Bretlandi þar sem að sendinefnd var skipuð til þess að fara þangað sem að G7 toppfundurinn var haldin. Frá 1988 þegar var haldin TOES hefur hann verið haldin í sömu borg og G7 fundurinn var haldin. Fundirnir voru haldnir í eftirfarandi borgum; Houston (1990), Denver (1997), Birmingham (1998), Warwick (2000), Brunswick (2004).[4]
References
breyta- ↑ The Other Economic Summit (1985). [1]"Bonn Economic Summit: A Draft Agenda for Economic Recovery and World Development". Community Development Journal 20: 309-311. Sótt 9. Október 2009.
- ↑ Pianta, Mario (2007). „The Global Justice Movements: The Transnational Dimension“. Í D. della Porta (ritstjóri). The Global Justice Movement: A Cross-National and Transnational Perspective (PDF). Boulder, Co.: Paradigm. bls. 34.Sótt 9. Október 2009
- ↑ „The other economic summit and the New Economics Foundation“. Afrit af upprunalegu geymt þann 25. september 2009. Sótt 21. mars 2010.
- ↑ „TOES USA“. Afrit af upprunalegu geymt þann 25. september 2009. Sótt 21. mars 2010.