Denver
Denver er höfuðborg og fjölmennasta borg Colorado-fylkis. Árið 2019 var íbúafjöldi um 730.000.
„The Mile High City“ er auknefni á borgina, af því að hún er einmitt 1.609 metrum (einni enskri mílu) yfir sjávarmáli. Klettafjöll eru nálæg og draga marga ferðamenn, sérstaklega skíðamenn, að Denver. Borgin er nefnd í höfuðið á James W. Denver.
Mikilvægir háskólar í Denver eru Denver-háskóli, Colorado-háskóli í Denver og Regis-háskóli.
Núverandi borgarstjóri er Michael Hancock.