Kristín Ólafsdóttir - Tennurnar mínar
(Endurbeint frá Tennurnar mínar)
Tennurnar mínar er 45-snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1971. Á henni flytur Kristín Ólafsdóttir tvö ný barnalög. Útsetningar og hljómsveitarstjórn, Reynir Sigurðsson. Um hljóðritun sá Ríkisútvarpið. Ljósmynd á umslagi er eftir Jóhönnu Ólafsdóttur. Teikningar á umslagi gerði Halldór Pétursson
Tennurnar mínar | |
---|---|
SG - 557 | |
Flytjandi | Kristín Ólafsdóttir |
Gefin út | 1971 |
Stefna | Barnalög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Lagalisti
breyta- „Tennurnar mínar“ - Lag - texti: Kare Gröttum - Örn Snorrason - Lag þetta er gefið út á SG-hljómplötu að tilhlutan Tannlæknafélags Íslands.
- „Dýramál“ - Lag - texti: Gísli Kristjánsson - Hjörtur Hjálmarsson
Tennurnar mínar
breyta- Hjá tannlækni ég tafði um stund
- og trúið mér, að þar
- mér ekkert reyndist óttarlegt.
- Hann afbragðs óður var.
- Hann spurði bara: „Burstarðu tennur þínar?"
- Svo brosti hann glaður, þegar hann sá mínar.
- Viðlag:
- Það skemmist ei tönn, sem er skínandi hrein.
- Því skal ég ekki neitt láta vinna þeim mein.
- Þann krakka er í sífellu sœlgœti vill,
- sœkir heim tannpínan ill.
- Það er grátlegt og leitt,
- það er grátlegt og leitt,
- að geta varla tuggið neitt.
- Á eftir mat ég alltaf bursta
- eins og vera ber.
- Ég skola munn og skirpi i vask
- og skoða tennur fer.
- Í spegli lít ég yfir allt það hreina.
- Já, aldrei má ég láta skemmast neina.
- Ég œtla að borða ávexti
- og alls kyns hollan mat,
- og ekki skal ég hreyfa hönd,
- þótt horfi á kökufat.
- Mér þykir hart, að heimsins villimönnum
- hljótist meira gagn af sínum tönnum.
- Hver óskemmd tönn er eins og perla,
- eitt hið bezta skart,
- því skal ég halda heiðri í
- það holla, sem er margt.
- Þótt sumir aðrir ekki hugsi um sínar
- ég ætla að reyna að vernda mínar.
- (Þýtt úr norsku: Örn Snorrason).