Túaregar
Túaregar eru berbískt þjóðflokkasamband. Þeir búa aðallega í Saharaeyðimörkinni á miklu svæði sem teygir sig frá suðvesturhluta Líbíu til suðurhluta Alsír, Níger, Malí og Búrkína Fasó.[1] Túaregar hafa sögulega verið smalar og hirðingjar og fámennir hópar þeirra búa einnig í norðurhluta Nígeríu.[2]
Túaregar tala samnefnt tungumál (einnig kallað Tamasheq) sem tilheyrir berbískri kvísl afróasísku tungumálafjölskyldunnar.[3]
Túaregar hafa stundum verið kallaðir „bláa fólkið“ vegna hefðbundinna blárra viðhafnarklæða sinna, sem hafa átt það til að flekka hörund þeirra með litarefni sínu.[4][5] Þeir eru íslömsk hirðingjaþjóð sem talið er að sé komin af berbískum frumbyggjum Norður-Afríku.[6] Túaregar voru meðal þeirra þjóða sem höfðu hvað mest áhrif á útbreiðslu íslams og þróun trúarinnar í Norður-Afríku og nágrannasvæðinu Sahel.[7] Í menningu Túarega er þó ýmsum siðum frá því fyrir daga íslams viðhaldið; til dæmis eru ættir raktar í kvenlegg en ekki karllegg og karlar bera slæður en ekki konur.[8]
Túaregar eru ættbálkasamfélag þar sem hver ættbálkur hefur sitt stigveldi og sína stéttskiptingu.[4][9][10] Túaregar hafa stjórnað ýmsum verslunarleiðum gegnum Sahara og hafa leikið lykilhlutverk í mörgum hernaðardeilum í kapphlaupinu um Afríku og eftir afnýlendun álfunnar.[4]
Tilvísanir
breyta- ↑ Shoup III, John A. (2011). Ethnic Groups of Africa and the Middle East. ABC-CLIO. bls. 295. ISBN 978-1598843637. Sótt 7. nóvember 2016.
- ↑ "The total Tuareg population is well above one million individuals." Keith Brown, Sarah Ogilvie, Concise encyclopedia of languages of the world, Elsevier, 2008, ISBN 9780080877747, p. 152.
- ↑ Lewis, M. Paul (ed.), 2009. Ethnologue: Languages of the World, Sixteenth edition. Dallas, Tex.: SIL International. Online version: http://www.ethnologue.com/.
- ↑ 4,0 4,1 4,2 Elizabeth Heath (2010). Anthony Appiah and Henry Louis Gates (ritstjóri). Encyclopedia of Africa. Oxford University Press. bls. 499–500. ISBN 978-0-19-533770-9.
- ↑ Karl G. Prasse (1995). The Tuaregs: The Blue People. Museum Tusculanum Press. ISBN 978-87-7289-313-6.
- ↑ Rasmussen, Susan J. (1996). „Tuareg“. Í Levinson, David (ritstjóri). Encyclopedia of World Culture, Volume 9: Africa and the Middle East. G.K. Hall. bls. 366–369. ISBN 978-0-8161-1808-3.
- ↑ Harry T. Norris (1976). The Tuaregs: Their Islamic Legacy and Its Diffusion in the Sahel. London: Warminster. bls. 1–4, chapters 3, 4. ISBN 978-0-85668-362-6. OCLC 750606862.; For an abstract, ASC Leiden Catalogue Geymt 30 maí 2023 í Wayback Machine; For a review of Norris' book: Stewart, C. C. (1977). „The Tuaregs: Their Islamic Legacy and its Diffusion in the Sahel. By H. T. Norris“. Africa. 47 (4): 423–424. doi:10.2307/1158348. JSTOR 1158348.
- ↑ „Þjóð sem berst fyrir lífi sínu“. Þjóðviljinn. 9. nóvember 1990.
- ↑ Karl G. Prasse 1995, bls. 16, 17–22, 38–44.
- ↑ Tamari, Tal (1991). „The Development of Caste Systems in West Africa“. The Journal of African History. 32 (2): 221–222, 228–250. doi:10.1017/s0021853700025718.