Sverðmosi
Sverðmosi (fræðiheiti: Bryoxiphium norvegicum) er tegund mosa. Hann finnst víða á Íslandi í hellum eða vindblásnu móbergi.[2]
Sverðmosi | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Sverðmosi á vegg í Svíþjóð.
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Bryoxiphium norvegicum |
Saga
breytaSverðmosi var uppgötvaður á Sveifluhálsi á Reykjanesi árið 1820 en mörg ár tók að greina sýnið. Það var ekki fyrr en árið 1869 sem sverðmosi var flokkaður í sinn eigin ættbálk, sverðmosabálk undir ættkvíslarheitinu Bryoxiphium. Fyrir mistök fékk mosinn latneska heitið norvegicum sem þýðir norskur.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ Gabriel, R., Sim-Sim, M., Hodgetts, N. & Martins, A. (2019). Bryoxiphium norvegicum. The IUCN Red List of Threatened Species 2019: e.T84329265A87712681. Sótt 29. október 2020.
- ↑ Flóra Íslands (án árs). Sverðmosi - Bryoxiphium norvegicum. Sótt 29. október 2020.
- ↑ Áskell Löve (1964). Sverðmosinn. Náttúrufræðingurinn 33(3-4), bls. 113-122.