Stálpastaðaskógur
(Endurbeint frá Stálpastaðir)
Stálpastaðaskógur er skógur á eyðibýlinu Stálpastöðum í Skorradal. Jörðin er um 160 hektarar og voru af þeim um 100 hektarar fallnir til skógræktar, sem nú eru fullnýttir. Margar erlendar trjátegundir hafa verið þar settar niður, en mest þó af rauðgreni, sitkagreni og stafafuru sem þykja dafna þar vel. Í skógræktinni eru nú merktir minningarlundir og göngustígar og merkingar, þar á meðal trjásafn yfir ýmsar trjátegundir sem ræktaðar hafa verið upp í landi Stálpastaða. Frá árinu 1952 hafa verið gróðursettar á Stálpastöðum rúmlega 600.000 plöntur af 28 tegundum frá 70 stöðum úr veröldinni. Haukur og Soffía Thors ánöfnuðu Skógrækt ríkisins Stálpastaði 1951.
Heimildir
breyta- Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og Páll Líndal (1982). Landið þitt Ísland, S-T. Örn og Örlygur.
- Björn Hróarsson (1994). Á ferð um landið, Borgarfjörður og Mýrar. Mál og menning. ISBN 9979-3-0657-2.
Tenglar
breyta- Stálpastaðaskógur. Skógrækt ríkisins. Geymt 11 janúar 2016 í Wayback Machine
Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.