Spunavél
Spunavél er vél til að spinna þráð. Spunavélar tóku við af rokkum. Þróun spunavéla markar tímamót í iðnsögu og Iðnbyltingunni. Árið 1779 smíðaði Samuel Crompton spunavél sem tengja mátti við gufuvél. Árið 1786 fékk Richard Arkwright einkaleyfi á vatnsknúinni spunavél. Á árunum 1770-1800 margfaldaðist notkun á baðmull og verð á baðmull lækkaði. Spunavélaverksmiðjur spruttu upp við auðugar kolanámur í Mið-Englandi og Manchester varð miðstöð baðmullar
Spunavélar á Íslandi
breytaÁ fyrri hluta 20. aldar urðu stórar spunavélar, 20 þráða eða stærri algengar í sveitum landsins. Margar þessara véla voru félagseign, eign hreppa eða búnaðarfélaga. Í Borgarfirði var þeim gjarnan komið fyrir nær jarðhita svo heitt væri hjá þeim sem spann. Spunavélar voru við Hreppslaug í Skorradal og að Sturlu-Reykjum í Reykholtsdal. Spunavélar voru stundum fluttar á milli bæja því þær voru þannig að gerð að fremur auðvelt var að taka þær í sundur. Hagleiksmenn í sveitum smíðuðu spunavélarnar. Þær þurftu mikið pláss. Árið 1897 var stofnað Tóvélar Eyjafjarðar.
Heimildir
breyta- Um tóvinnu (Austri, 12. tölublað (30.11.1891), Blaðsíða 45)
- Landbúnaðarsafn Íslands - Spunavélar og merkilegur tími þeirra Geymt 24 september 2020 í Wayback Machine
- Spunavélin í Ólafsdal (Hildur Bjarnadóttir) Geymt 1 október 2013 í Wayback Machine
- 25 teina spunavél á Álafosssýningunni 1937
- Ísafold, 43. tölublað (28.06.1899), Blaðsíða 169
- Ísafold, 44. tölublað (01.07.1899), Blaðsíða 173