Baðmull
Baðmull eða bómull eru trefjar sem vaxa utanum fræ baðmullarrunna, sem eru runnar af ættkvíslinni Gossypium, sem vex í hitabeltinu og heittempruðum svæðum jarðar. Baðmullartrefjar eru oftast spunnar í þráð sem er ofinn í mjúkt klæði. Baðmull er mest notaða náttúrulega efnið í fatnaði í dag.
Vinnsla baðmullar
breytaBaðmull er unnin úr fræhárum baðmullarplöntunnar. Fræhárin eru yfirleitt 20-38mm en geta þó verið 10-6mm. Þegar blómin af baðmullarplöntunni falla kemur í staðinn grænt ber. Þegar berið er orðið fullvaxta verður það brúnt og opnast. Hvítir baðmullarþræðir koma þá í ljós. Baðmullarplanta getur orðið allt að fimmtán ára gömul og er helst ræktuð í Kína, Japan, Indlandi, Afríku, á Suðurhafseyjum og í Suður-Ameríku. Baðmull er flokkuð eftir eiginleikum í þrjá höfuðflokka eftir lengd þráðanna, hreinleika og lit. Einnig skiptir máli hversu fínir þræðirnir er, teygjanleiki þeirra, styrkur, viðloðunarhæfni og slitþol.
Eiginleikar baðmullar
breytaBaðmull er sterkt efni og teygjanlegt. Það þolir vel sólarljós og tekur vel við vökva, raka og lit. Baðmullinn þolir vel þvott og straujun á háum hita. Við þvott styttist lengd þráðanna um 10%, en þvermál þeirra um 5%. Baðmullarþræðirnir innihalda ekki loft og hafa því litla einangrunareiginleika. Baðmull krumpast og vill taka í sig óhreinindi.