Smjörkreppan í Noregi
Smjörkreppan í Noregi hófst árið 2011 þegar upp kom alvarlegur skortur á smjöri sem leiddi til hækkunar á verði smjörs í landinu. Skorturinn olli verulegum verðhækkunum á smjöri og smjörbirgðir í matvöruverslunum seldust upp á nokkrum mínútum. Verðið á kíló af smjöri náði 600 norskum krónum. Á vikunum fram að jólum 2011 var smjörneysla Norðmanna 27% meiri en framleiðsla í landinu.[1]
Orsakir kreppunar voru meðal annars aukin neysla á smjöri og strangt kvótakerfi fyrir mjólkurafurðir.[1] Lítið framboð var á mjólk vegna ótíðar sumarið 2011. Stjórnvöld í Noregi reyndu að draga úr skortinum með því að lækka tolla á innfluttu smjöri og að afnema refsingar fyrir umframframleiðslu á smjöri.[2]
Heimildir
breyta- ↑ 1,0 1,1 „Smjörkreppa í Noregi, Danir hlaupa ekki undir bagga“, Vísir, 6. desember 2011.
- ↑ „Smjörskortur í Noregi“, RÚV, 6. desember 2011.