Joseph Banks

(Endurbeint frá Sir Joseph Banks)

Sir Joseph Banks (24 febrúar 1743 – 19. júní 1820) var breskur grasafræðingur og frumkvöðull á sviði náttúruvísinda. Hann tók þátt í fyrsta leiðangri James Cook. Hann var einn ráðgjafi bresku stjórnarinnar um málefni sem tengdust Íslandi og kom við sögu í byltingunni á Íslandi 1809. Árið 1772 kom hann til Íslands. Hann varð seinna áhrifamikill í Bretlandi og það var fyrir tilstilli hans að Englendingar leyfðu siglingar til Íslands á tímum Napóleonstyrjaldanna. Í leiðangri Sir Joseph Banks til Íslands 1772 var sænskur prestur Uno von Triol sem skrifaði bók um Ísland sem kom út 1780. Joseph Banks kom því til leiðar að grasafræðingurinn William Hooker var með í leiðangri Samuels Phelps til Íslands 1809 og skrifaði Hooker bók um þá ferð.

Málverk af Joseph Banks frá 1773

Handrit og bækur frá Íslandi

breyta

Á ferð hans um Ísland árið 1772 áskotnaðist Joseph Banks mörg íslensk handrit, mestmegnis ung pappírshandrit) og prentaðar bækur. Við komu sína aftur til Bretlands gaf Joseph British Library þessi gögn og eru þau nú varðveitt þar undir safnmörkunum Add. Ms. 4857–4896. Upplýsingar um innihald handrita er tekið úr

Add. Ms. 4857 (1669–1690)

breyta

Handritið var skrifað fyrir Magnús Jónsson í Vigri. Inniheldur fornaldarsögur, riddarasögur, ævintýri og þætti.

  1. Göngu-Hrólfs saga
  2. Appólóníus saga
  3. Gjafa-Refs saga
  4. Sörla saga sterka
  5. Hálfs saga og Hálfsrekka
  6. Ölkofra þáttur
  7. Slysa-Hróa þáttur
  8. Markólfs saga og Salómóns
  9. Ísleifs þáttur biskups
  10. Fertrams saga og Plató
  11. Ævintýr af einum brögðóttum mylnumanni
  12. Ívens saga (titill í handriti er Sagann af Artus Konge edur Herra Jvent)
  13. Ævintýr af greifa Bertram og Rósilíen
  14. Ævintýr af einum meistara

Add. Ms. 4858 (18. öld)

breyta

Annáll og fornbréf. Áður í eigu Jóns Árnasonar Skálholtsbiskups. Erlends Ólafssonar sýslumanns (1706-1772). Nafnið Þorsteinn Jónsson (óþekktur) kemur einnig fyrir í handritinu.

  1. Annálar frá 1200 til 1600.
  2. Gögn um líf og dauða Jóns Arasonar Hólabiskups (d. 1550), þ.m.t. ættartré hans í móðurætt og afsökunarbeiðni Daða Guðmundssonar vegna aftöku Jóns.[1]


Heimildir

breyta
  1. Finnur Jónsson, 1704-1789. (1772-78). Historia ecclesiastica Islandiae. Excudit G.G. Salicath. bls. 745. OCLC 551610250.