Sigurdór og Hljómsveit Svavars Gests - Þórsmerkurljóð
Sigurdór og Hljómsveit Svavars Gests er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1960. Á henni flytja Hljómsveit Svavars Gests, Sigurdór Sigurdórsson og kvennakór tvö lög. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló. Prentun: ÞEGG.
Sigurdór og Hljómsveit Svavars Gests | |
---|---|
45-2012 | |
Flytjandi | Hljómsveit Svavars Gests, Sigurdór Sigurdórsson, kvennakór |
Gefin út | 1960 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Lagalisti
breyta- Þórsmerkurljóð - Lag - texti: Þýskt alþýðulag - Sigurður Þórarinsson - ⓘ
- Mustafa - Lag - texti: Tyrkneskt alþýðulag - Jón Sigurðsson