Slöngur

(Endurbeint frá Serpentes)

Slöngur eða snákar (fræðiheiti: Serpentes) eru fótalaus skriðdýr með misheitt blóð. Þær eru með hreistur. Margar slöngur eru með mjög liðuga kjálka sem gera þeim kleift að gleypa bráð sem er stærri en hausinn þeirra.

Slöngur
Tímabil steingervinga: Krítartímabilið - nútími
Gleraugnaslanga (Naja naja)
Gleraugnaslanga (Naja naja)
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Skriðdýr (Sauropsida)
Ættbálkur: Hreisturdýr (Squamata)
Undirættbálkur: Serpentes
Linnaeus, 1758
Yfirættir og ættir
Aniliidae
Anomochilidae
Kyrkislöngur (Boidae)
Bolyeriidae
Cylindrophiidae
Loxocemidae
Pythonidae
Tropidophiidae
Uropeltidae
Xenopeltidae
Anomalepididae
Leptotyphlopidae
Typhlopidae
Acrochordidae
Atractaspididae
Grópleysingjar (Colubridae)
Eitursnákar (Elapidae)
Sæslöngur (Hydrophiidae)
Höggormar (Viperidae)

Þær eru náskyldar eðlum og til eru nokkrar tegundir fótalausra eðla sem líkjast slöngum.

Slöngur má finna í öllum heimsálfum fyrir utan Suðurskautslandið, en þær fyrifinnast ekki á Íslandi, Grænlandi, Nýja Sjálandi og ýmsum öðrum eyjum.

Af snákum eru til um 3000 tegundir,[1] þaraf eru um 250 eitraðar. Þær slöngur sem eru eitraðar nota eitrið aðallega til að fanga bráð frekar en til að verja sig. Slöngur sem eru ekki eitraðar drepa bráð sína annaðhvort með því að kyrkja hana eða með því að gleypa hana.

Allir snákar eru syntir. Sumir sjósnákar geta að hluta andað í gegnum húðina og geta því verið í kafi allt að 6 tíma. Sá hluti þeirra sem geta aðeins andað með lungunum geta haldið sér á kafi í allt að 15 mínótur.

Tenglar

breyta
   Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  1. Tilvísunar villa: Villa í <ref> tag; tilgreindu texta fyrir tilvísun með nafnið pl