Satyajit Ray
indverskur kvikmyndagerðarmaður og rithöfundur (1921-1992)
Satyajit Ray (ⓘ; 2. maí 1921 – 23. apríl 1992) var bengalskur kvikmyndagerðarmaður frá Indlandi. Auk þess var hann myndskreytir, tónskáld, textahöfundur, rithöfundur og ritstjóri. Þekktustu kvikmyndir hans eru Apu-þríleikurinn (1955-1959), Jalsaghar (1958), The Big City (1963) og Carulata (1964).
Hann fæddist í Kalkútta og var sonur rímnaskáldsins Sukumar Ray. Hann hóf feril sem myndlistarmaður, en fékk áhuga á kvikmyndagerð eftir að hafa hitt franska leikstjórann Jean Renoir (sem tók myndina Fljótið í Kalkútta árið 1949) og séð Reiðhjólaþjófana eftir Vittorio De Sica í ferð til London árið 1948. Fyrsta kvikmynd hans, Pather Panchali (1955), vann til fjölda alþjóðlegra verðlauna.