Saskatchewan
Fylki í Kanada
Saskatchewan er fylki í Kanada. Það er á sléttunum miklu og á landamæri að Alberta í vestri, Manitóba í austri, Norðvesturhéruðunum í norðri og Núnavút í norðaustri. Í suðri á fylkið landamæri að Montana og Norður-Dakóta. Höfuðborgin er Regina en stærsta borgin er Saskatoon. Fylkið nær yfir 592.534 ferkílómetra og íbúar þess eru um 1,1 milljón (2018). Saskatchewan varð að kanadísku fylki árið 1905.
Hiti hefur mælst 45 gráður í fylkinu.
Tenglar
breyta- Katrín Níelsdóttir. „Blómlegar byggðir: Landnám Íslendinga í Saskatchewan“ (PDF). Sótt 26. febrúar 2020.
- Julia Adamson. „Iceland to Saskatchewan“ (PDF). Sótt 26. febrúar 2020.
- Icelandic Roots. „Where did they go to“ (PDF). Sótt 26. febrúar 2020.