Sam Tillen
Samuel Lee „Sam“ Tillen (fæddur 16. apríl 1985 í Reading á Englandi) er enskur knattspyrnumaður sem leikur með FH en lék áður með Fram.
Sam Tillen | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Sam Lee Tillen | |
Fæðingardagur | 16. apríl 1985 | |
Fæðingarstaður | Reading, England | |
Leikstaða | Varnarmaður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | FH | |
Númer | 4 | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2002-2005 | Chelsea F.C. | 0 (0) |
2005-2008 | Brentford | 68 (1) |
2008-2013 | Fram | 79 (4) |
2013- | FH | 2 (0) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Tillen hóf ferill sinn með yngriflokkum Chelsea en fékk ekki tækifæri með aðalliði félagsins og skipti því yfir í Brentford árið 2005. Árið 2008 varð hann samningslaus og var þá uppgötvaður af Þorvaldi Örlygssyni sem þá var á ferðalagi um England í leit að leikmanni til að stykja leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í Pepsideild karla. Úr varð að Sam kom til Íslands. Fyrsti leikur hans var tapleikur gegn Fylki 3-0. Tillen gekk svo til liðs við FH snemma árs 2013.
Bróðir hans, Joe Tillen, leikur um þessar mundir með Selfossi en lék þar áður í nokkur ár með Fram.
Núna er hann þjálfari í Fimleikafélagi Hafnafjarðar, þar þjálfar hann 4.flokk karla með góðum árangri