Salt (hljómplata)
Salt er fyrsta breiðskífa með hljómsveitinni XIII sem kom út árið 1994. Upptökur á plötunni hófust veturinn 1993 og hún var hljóðblönduð í vöruskemmu í Hafnarfirði af Ingvari Jónssyni. Íslenska útgáfufélagið Spor gaf út plötuna á Íslandi og farið var í útrás í útgáfu plötunnar erlendis.
Salt | ||||
---|---|---|---|---|
Breiðskífa | ||||
Flytjandi | Hljómsveitin XIII | |||
Gefin út | 13. maí 1994 | |||
Stefna | Rokk, New Wave/Goth | |||
Útgefandi | Spor, No Bull Records | |||
Stjórn | Ingvar Jónsson | |||
Tímaröð – Hljómsveitin XIII | ||||
|
Steinar Berg, stjórnandi útgáfufélagsins Spor, lenti útgáfu Salt í Evrópu undir merkjum No Bull Records. No Bull Records var nýstofnaður rokkhluti hins mikla Koch útgáfuveldis sem aðallega hefur gefið út klassíska tónlist. Hafði Steinar á orði að aldrei hefði verið jafn fyrirhafnarlítið að lenda erlendum plötusamningi og fyrir plötuna Salt. Platan seldist ágætlega og er orðin ófáanleg í dag. Litið er á Salt sem safneintak.
Lagalisti
breyta- Zoot (6:20)
- Ghost (5:53)
- Cat (3:40)
- Thirteen (3:59)
- Hammer down (5:23)
- Home (3:10)
- Pupate (4:43)
- Slavedriver (4:45)
- Crime (5:14)
- Serpents child (1:12)
- Moon (5:24)
- Family affairs (5:35)
- Necropolis (6:52)