Sagnfylling
Sagnfylling (skammstafað sem sf.) er hugtak í setningarfræði. Sagnfylling er fallorð í nefnifalli sem stendur með áhrifslausri sögn.
Sagnfylling útskýrir frumlagið nánar. Sagnfylling er eins og andlag fyrir utan það að andlag er ávallt í aukafalli þ.e.a.s. þolfalli, þágufalli eða eignarfalli og sagnfylling alltaf í aðalfalli (nefnifalli).
Dæmi
breyta- Krakkarnir eru duglegir.
- Hún er skemmtileg.
- Hverjir eru bestir?