Frægðarhöll rokksins
(Endurbeint frá Rock and Roll Hall of Fame)
Frægðarhöll rokksins (e. Rock and Roll Hall of Fame, RRHOF) er safn og heiðurshöll staðsett í Cleveland, Ohio, Bandaríkjunum. Safnið sýnir sögu rokk tónlistar og heiðrar listamenn, framleiðendur, upptökustjóra, og aðrar merkar manneskjur sem hafa komið að þróun hennar.
The Rock and Roll Hall of Fame Foundation var stofnað þann 20. apríl 1983 af Ahmet Ertegun, stofnanda og forstjóra Atlantic Records. Cleveland var valin sem staðsetning hallarinnar árið 1986 og var hún hönnuð af I. M. Pei.[1] Safnið var vígt 1. september 1995.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Wright, Nathalie (19. október 2021). „Rock and Roll Hall of Fame and Museum“. sah-archipedia.org.
- ↑ Norman, Michael (september 2015). „A firsthand account of the 1995 'Concert for the Hall of Fame,' with complete setlist“. The Plain Dealer. Sótt 11. júní 2019.