Reykir (Reykjaströnd)
Reykir eru eyðibýli á Reykjaströnd í Skagafirði, ysti bærinn á Ströndinni. Mjótt nes teygist til norðurs frá bænum og kallast það Reykjadiskur.
Í landi Reykja er Glerhallavík undir Tindastóli. Þar var áður mikið af glerhöllum, hvítum kvartssteinum sem slípast höfðu í fjörunni en nú eru þeir að mestu horfnir þvi fólk hefur hirt þá þrátt fyrir bann. Í Sandfelli í landi Reykja var eitt sinn silfurbergsnáma.
Á Reykjum er nokkur jarðhiti eins og nafnið bendir til og þar fór Grettir Ásmundsson að sögn í laug rétt ofan við fjöruborðið og hlýjaði sér eftir Drangeyjarsund sitt. Laug var þar sem kölluð var Grettislaug en árið 1934 eyðilagðist hún í hafróti og hvarf, en mjög hvasst og brimasamt getur orðið á Reykjum. Árið 1992 var hún svo endurgerð og hlaðinn skjólveggur við hana og hefur síðan verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna. Þar rétt hjá er lítil höfn og þaðan er farið í Drangeyjarsiglingar.
Í Grettis sögu segir að kirkja sé á Reykjum en engar aðrar heimildir eru til um hana.