Ríkharður 2. af Normandí

(Endurbeint frá Ríkarður 2. af Normandí)

Ríkharður 2. af Normandí (f. 23. ágúst 970 í Normandí, d. 28. ágúst 1026 í Normandí), nefndur hinn góði (franska: Le Bon, enska: the Good), var elsti sonur og erfingi Ríkharðs 1. af Normandí og konu hans, sem hét Gunnur eða Gunnþóra (Gonnor, Gunnora). Hann tók við völdum sem hertogi af Normandí árið 996.

Stytta af Ríkharði 2. á aðaltorgi Falaise í Normandí.

Hann gerði bandalag við Kapetinga (frönsku konungsættina) og einnig við Bretaníu með því að gifta systur sína Guðfreði 1. af Bretaníu og giftist sjálfur systur hans, Júdit af Bretaníu. Hann reyndi einnig að bæta sambandið við England með hjónabandi Emmu systur sinnar og Aðalráðs konungs, en það gekk illa því að Englendingum líkaði ekki við hana. Samt sem áður varð þetta samband hans við England grunnur ásamt öðru að kröfum Vilhjálms bastarðar sonarsonar hans þegar hann barðist fyrir völdum á Englandi.

Ríkharður og Júdit áttu 6 börn og var Ríkharður elstur, sem síðar varð Ríkharður 3. af Normandí. Júdit dó 1017 og eftir það giftist hann seinni konu sinni, Poppu af Envermeu, og áttu þau tvö börn. Sagnir eru um það að hann hafi gifst í þriðja sinn Ástríði Sveinsdóttur, dóttir Sveins tjúguskeggs, konungs í Englandi, Danmörku og Noregi. Það er þó ekki talið fullvíst.


Fyrirrennari:
Ríkharður 1. af Normandí
Hertogar af Normandí
(996 – 1026)
Eftirmaður:
Ríkharður 3. af Normandí