Qasigiannguit
68°49′N 51°35′V / 68.817°N 51.583°V Qasigiannguit (á dönsku Christianshåb) er byggðarlag á Vestur-Grænlandi við suðvesturströnd Diskó-flóa með um 1200 (2013) íbúum og er hluti af sveitarfélaginu Avannaata. Til eru dæmi um að Qasigiannguit hafi verið nefnt Kristjánsvon á íslensku.
Sögubrot
breytaGrænlenska nafnið þýðir litli flekkótti rostungurinn. Það var árið 1734 sem danski kaupmaðurinn Jacob Severin stofnaði verslunarstöð skammt sunnan við núverandi bæjarstæði og nefndi hana í höfuðið á Kristjáni VI Danakonungi. Severin hafði einkarétt á verslun við Grænlendinga fram til 1749. Árið 1739 kom til bardaga milli danskra og hollenskra kaupmanna við Qasigiannguit um verslunaryfirráð. Frá 1736 til 1740 starfaði trúboðinn Poul Egede í Christianshåb. Verslunarstaðurinn var fluttur á núverandi stað 1763 og má enn sjá rústir upphaflegu verslunarstöðvarinnar.
Atvinnulíf
breytaBæjarbúar vinna aðallega við fiskveiðar og fiskvinnslu. Það er einkum lúða og krabbar sem verkuð eru. Fyrir utan fiskinn er talsverð og vaxandi ferðamennska mikilvæg atvinnugrein.
Tenglar
breyta- Vefsvæði Qasigiannguit Geymt 24 október 2007 í Wayback Machine
- Upplýsingar fyrir ferðamenn Geymt 8 desember 2006 í Wayback Machine
- Sögulegar myndir frá Qasigiannguit Geymt 14 október 2007 í Wayback Machine