Qaqortoq
60°43′N 46°02′V / 60.717°N 46.033°V
Stærsti bær Suður-Grænlands heitir á grænlensku Qaqortoq (ⓘ) og á dönsku Julianehåb. Bærinn er aðalbyggð í sveitarfélaginu Kujalleq. Um 3200 íbúar voru þar árið 2013. Um 300 búa utan aðalbyggðarinnar, flestir á 2 hreindýrabúum og 13 sauðfjárbúum. Nafnið Qaqortoq þýðir hið hvíta. Bærinn var stofnaður árið 1775 sem danskur verslunarstaður. Þar er nú menntasetur Suður-Grænlands með menntaskóla, verslunarskóla og háskóla. Þar er einnig eina sútunarverksmiðja Grænlands, Great Greenland, sem verkar skinn af selum og ísbjörnum. Hér var þéttbyggt og eitt aðalsvæði í Eystribyggð hinna fornu Grænlendinga. Enn má víða sjá rústir eftir bæi þeirra, meðal annars kirkjuna á Hvalsey sem er skammt frá byggðakjarnanum í Qaqortoq.
Ítarefni
breyta- Ferðamálaskrifstofa Qaqortoq Geymt 10 maí 2009 í Wayback Machine
- Bændaskólinn Upernaviarsuk Geymt 25 september 2004 í Wayback Machine