Pinus hartwegii
Pinus hartwegii er furutegund ættuð frá fjöllum Mexíkó og Mið-Ameríku austur til Hondúras. Hún er nefnd eftir Karl Theodor Hartweg, sem uppgötvaði hana 1838.
Pinus hartwegii | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pinus hartwegii Lindl. | ||||||||||||||||
Nátúruleg útbreiðsla
| ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Pinus wilsonii Roezl |
Útbreiðsla
breytaPinus hartwegii er tegund hátt til fjalla, í 2.500–4.300 m hæð. Hún myndar trjálínu á flestum hærri fjöllum Mexíkó. Hún vex bæði í Sierra Madre Occidental og Sierra Madre Oriental (fjallakeðjunum) (29°N) frá Chihuahua-ríki og Nuevo León (26°N) til hæstu tinda í fjöllum El Salvador til landamæra Hondúras (15°N). Í Sierra Madre Occidental eru veturnir mjög þurrir og mikið regntímabil á sumrin, með stöðugum frostum frá október til mars.
Þessi fura fær sjalda eða ekki þann dvergvöxt eða krækluvöxt sem annars einkennir tré hátt til fjalla (við skógarmörk). Jafnvel við trjálínu verður tréð ekki fyrir skaða af kulda og skaraveðri sem verður í þeirri hæð. Þess vegna hefur Pinus hartwegii verið rannsökuð sem þróunarfræðilega einstök tegund við trjálínu.
Lýsing
breytaPinus hartwegii er sígrænt tré sem nær 20–30 m hæð með breiða og rúnnaða krónu. Börkurinn er þykkur, dökkgrábrúnn og hreistraður eða sprunginn. Dökkgrænar barrnálarnar eru fimm (einstaka sinnum fjórar) í búnti, 10–20 sm langar og 1,2–1,5 mm gildar, langlíft blaðslíðrið 1,5–2 sm langt.
Könglarnir eru egglaga, 6–13 sm langir, svartir eða mjög dökkfjólubláir, opnast við þroska að vori 5–7 sm breiðir. Fræin eru vængjuð, 5–6 mm löng með 1,5–2,5 sm væng. Frjóvgun er síðla vors, og þroskast könglarnir 20–22 mánuðum síðar.
Hún er náskyld Pinus montezumae, er frábrugðin henni með styttra barri, svörtum (ekki brúnum) og minni könglum; hún tekur við af Pinus montezumae hærra til fjalla, og blandast henni oft þar sem útbreiðslan skarast í miðjum hlíðum.
Tilvísanir
breyta- ↑ Farjon, A. (2013). „Pinus hartwegii“. The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2013: e.T42367A2975679. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T42367A2975679.en. Sótt 13. desember 2017.
- Earle, Christopher J., ed. (2018). "Pinus hartwegii". The Gymnosperm Database.