Fjallaland

(Endurbeint frá Piemonte)

Fjallaland (fjallalenska Piemont; ítalska Piemonte; franska Piémont) er hérað á Ítalíu. Það þekur 25.399 km² og íbúar eru um 4,3 milljónir (2020). Höfuðstaður héraðsins er Tórínó. Héraðið dregur nafn sitt af því að það liggur við rætur Alpafjalla sem afmarka það á þrjá vegu. Það á landamæri að Frakklandi, Sviss og ítölsku héruðunum Langbarðalandi, Lígúríu og Ágústudal.

Staðsetning.
Fáni Fjallalands

Héraðið varð hluti af Savoja árið 1046 og þegar greifadæmið varð að hertogadæmi árið 1416 var Tórínó gerð að höfuðborg. Þegar hertoginn af Savoja varð konungur Sardiníu varð Tórínó höfuðborg Konungsríkisins Sardiníu. Þar hófst síðan sameining Ítalíu 1859.

Fjallaland skiptist í sex sýslur: