Himnuskóf
(Endurbeint frá Peltigera membranacea)
Himnuskóf (fræðiheiti: Peltigera membranacea) er flétta sem algeng er um land allt. Hún vex í skógabotnum, lyngmóum og graslendi og er grá eða grábrún að lit. Lengi vel var himnuskóf ekki aðgreind frá engjaskóf (P. canina) enda nákyld henni og lík í útliti. Himnuskófin er þó gjarnan stærri og breiðari heldur en engjaskófin, en þalið er um 300 – 500 µm á þykkt. Þó að oft sé auðvelt að greina í sundur P. canina og P. membranacea þá getur það verið erfitt, einkum ef sýnin eru þurrkuð þanig að hin augljósu einkenni séu ekki eins greinileg[1][2]
Himnuskóf | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Peltigera membranacea (Ach.) Nyl. |
Tilvísanir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Himnuskóf.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Peltigera membranacea.