Pétur G. Guðmundsson

(Endurbeint frá Pétur Georg Guðmundsson)

Pétur Georg Guðmundsson (6. september 187913. ágúst 1947) var bókbindari, blaðamaður og bæjarfulltrúi í Reykjavík frá 1910 til 1914.

Ævi og störf

breyta

Pétur fæddist á Bjarnastöðum í Saurbæjarhreppi. Lærði bókband hjá Arinbirni Sveinbjarnarsyni og lagði lengi stund á iðngrein sína.

Var meðal stofnenda Verkamannafélagsins Dagsbrúnar árið 1906 og ritstýrði þá fyrsta málgagni verkamanna á Íslandi, Alþýðublaðinu hinu fyrra. Varð annar formaður Dagsbrúnar árið 1908. Gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir hreyfingu launafólks og félög bókbindara.

Var kjörinn í bæjarstjórn Reykjavíkur af lista Dagsbrúnar árið 1910, en í sömu kosningum náði gamli bókbandsmeistari hans, Arinbjörn Sveinbjarnarson kjöri fyrir Heimastjórnarflokkinn.

Heimild

breyta
  • Páll Líndal & Torfi Jónsson (1986). Reykjavík: Bæjar- og borgarfulltrúatal 1836-1986. Reykjavíkurborg.