Páll Einarsson (jarðfræðingur)
Páll Einarsson (fæddur 27. mars 1947) er íslenskur jarðeðlisfræðingur og fyrrverandi prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.
Páll fæddist í Reykjavík og voru foreldrar hans Einar Baldvin Pálsson (1912-2011) prófessor í verkfræði og Kristín Pálsdóttir ritari (1917-2006). Föðurafi Páls var Páll Einarsson fyrsti borgarstjóri Reykjavíkur.
Páll lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1967, fyrrihlutaprófi í eðlisfræði frá Háskólanum í Göttingen í Þýskalandi 1970 og doktorsprófi í jarðeðlisfræði frá Columbia háskóla í New York árið 1975 með jarðskjálftafræði sem aðalgrein. Hann var sérfræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands frá 1975-1994 og 1997-1998. Páll varð prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands árið 1994 en hafði áður verið stundakennari við skólann frá 1975. Páll hefur átt sæti í Vísindamannaráði Almannavarna frá upphafi.[1]
Páll hefur sett upp jarðskjálftamæla um allt land og fylgst með jarðskjálfta og eldsumbrotum í marga áratugi. Hann er tíður gestur fjölmiðla þegar atburðir í jarðskorpunni eiga sér stað.
Viðurkenningar
breyta- Sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 2015 fyrir rannsóknir og fræðslu á sviði íslenskra jarðvísinda
- Hlaut norrænu jarðvísindaverðlaunin 2018 fyrir árangur í vísindum og miðlun þekkingar til stjórnvalda og almennings.
- Rossby-verðlaun Sænsku vísindaakademíunnar árið 2024. [2]
Tenglar
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Pétur Ástvaldsson, Samtíðarmenn J-Ö bls. 637, (Reykjavík, 2003)
- ↑ The Rossby prize seminar 2024 Kva.se, sótt 20. desember 2024