Múte Bourup Egede
Múte Inequnaaluk Bourup Egede (f. 11. mars 1987)[1] er grænlenskur stjórnmálamaður sem er sjöundi og núverandi formaður landstjórnar (eða forsætisráðherra) Grænlands. Hann hefur gegnt því embætti frá apríl 2021.[2] Hann hefur setið á grænlenska þinginu, Inatsisartut, frá árinu 2016, og hefur verið formaður stjórnmálaflokksins Inuit Ataqatigiit frá 2018.[3][4]
Múte Bourup Egede | |
---|---|
Formaður landstjórnar Grænlands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 23. apríl 2021 | |
Þjóðhöfðingi | Margrét 2. Friðrik 10. |
Forveri | Kim Kielsen |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 11. mars 1987 Nuuk, Grænlandi |
Þjóðerni | Grænlenskur |
Stjórnmálaflokkur | Inuit Ataqatigiit |
Maki | Sara Biilmann Egede |
Börn | 2 |
Háskóli | Háskóli Grænlands |
Æviágrip
breytaEgede er fæddur í Nuuk en ólst upp í Narsaq í suðurhluta Grænlands. Hann lauk menntaskólanámi í Qaqortoq og byrjaði síðan nám í menningar- og samfélagssögu við Háskóla Grænlands árið 2007. Hann var varaformaður stúdentasamtakanna KISAQ frá 2011 til 2012.[1] Egede útskrifaðist ekki þar sem hann hætti námi árið 2012 til að taka við stjórn fjölskyldufyrirtækis föður síns í fóðurframleiðslu.[5][4]
Árið 2007 sat Egede á ungmennaþingi Grænlands, Inuusuttut Inatsisartui,[4] og frá 2013 til 2015 var hann formaður Inuusuttut Ataqatigiit, ungliðahreyfingar Inuit Ataqatigiit.[1][4]
Egede bauð sig fram á danska þingið fyrir Inuit Ataqatigiit í þingkosningum Danmerkur árið 2015.[6] Hann hlaut 2.131 atkvæði, sem nægði honum ekki til að fá sæti á þingi.[7]
Egede var auðlinda- og vinnumarkaðsráðherra frá 2016 til 2018. Hann var jafnframt sveitarstjórnar-, innviða- og húsnæðismálaráðherra í þrjá mánuði árið 2017.[4]
Þann 1. desember 2018 var hann kjörinn formaður Inuit Ataqatigiit og tók við af Söru Olsvig.[4] Hann leiddi flokkinn í þingkosningum Grænlands árið 2021, þar sem flokkurinn hlaut 36,6% atkvæða og varð stærsti flokkurinn á þingi.[5] Egede hlaut 3.380 atkvæði, mest allra frambjóðenda og um 1,500 atkvæði meira en sitjandi formaður landstjórnarinnar, Kim Kielsen úr Siumut-flokknum.[8] Þann 16. apríl var kunngert að Egede hefði myndað samsteypustjórn ásamt Naleraq. Landstjórn þeirra (Naalakkersuisut) telur til sín tíu meðlimi. Flokkurinn Atassut, sem er með tvö þingsæti, tilkynnti að hann myndi ekki taka þátt í stjórn sem aðhylltist sjálfstæði en að hann myndi verja hann vantrausti.[9] Egede er yngsti landstjórnarformaður í sögu Grænlands.[10] Grænlenska þingið (Inatsisartut) staðfesti skipan Egede þann 23. apríl.[2]
Egede myndaði aðra ríkisstjórn í apríl 2022.[11]
Stjórnmálaskoðanir
breytaEgede er formaður Inuit Ataqatigiit, sem er jafnaðarflokkur á Grænlandi.[12] Líkt og flokkurinn aðhyllist Egede sjálfstæði Grænlands.[4]
Einkahagir
breytaEgede á tvö börn með fyrrverandi sambýliskonu sinni.[1]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 „CV – Múte B. Egede“ (PDF) (danska). Inatsisartut. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 17. júlí 2020. Sótt 17. júlí 2020.
- ↑ 2,0 2,1 Hyldal, Christine (23. apríl 2021). „Múte Egede er ny formand for Naalakkersuisut“ (danska). Kalaallit Nunaata Radioa. Sótt 23. apríl 2021.
- ↑ „Grønlandske IA vælger ny formand“ (danska). Altinget. 3. desember 2018. Sótt 17. júlí 2020.
- ↑ 4,0 4,1 4,2 4,3 4,4 4,5 4,6 Veirum, Thomas Munk (1. desember 2018). „Múte B. Egede er ny IA-formand“ (danska). Kalaallit Nunaata Radioa.
- ↑ 5,0 5,1 Ildor, Astrid (7. apríl 2021). „En alvorlig, ung mand står til at blive Grønlands yngste regeringsleder“ (danska). DR . Sótt 8. apríl 2021.
- ↑ Dam, Camilla (27. maí 2015). „Múte B. Egede stiller op til Folketingsvalget“ (danska). Kalaallit Nunaata Radioa. Sótt 17. júlí 2020.
- ↑ „Resultater for valg.gl – Valg.gl“ (danska). valg.gl. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. júlí 2020. Sótt 17. júlí 2020.
- ↑ Synnestvedt, Anne Meisner (8. apríl 2021). „Muté B. Egede er den største stemmesluger, og Kielsen halser efter“ (danska). Kalaallit Nunaata Radioa. Sótt 8. apríl 2021.
- ↑ „Greenland's left-wing IA party forms new government, vows to block rare-earth mine“. Reuters. 16. apríl 2021. Sótt 18. apríl 2021.
- ↑ „Her er Mútes Naalakkersuisut“. Sermitsiaq (danska).
- ↑ „Nyt Naalakkersuisut: Siumut får fiskeri og udenrigsanliggender“. Sermitsiaq.AG (danska). Sótt 10. ágúst 2022.
- ↑ „Left-wing party which opposes major mining project wins Greenland general election“. Independent.co.uk. 7. apríl 2021. Afrit af uppruna á 18. júní 2022.