Leonard Cohen
Leonard Norman Cohen (21. september 1934 – 7. nóvember 2016) var kanadískur söngvari, lagahöfundur og skáld. Í verkum sínum fór hann víða og fjallaði um jafnt trúarbrögð, stjórnmál, einangrun, kynvitund og persónuleg samskipti sem dæmi. Fyrir störf sín var hann bæði tekinn inn í bandarísku Rock and Roll Hall of Fame og kanadísku Canadian Songwriters Hall of Fame. Cohen hlaut einnig æðstu gráðu sem borgari getur hlotið í Kanada (e. Companion of the Order of Canada) og árið 2011 hlaut hann Prince of Asturias Award fyrir ritstörf.
Leonard Cohen | |
---|---|
Fæddur | 21. september 1934 |
Dáinn | 7. nóvember 2016 (82 ára) |
Störf |
|
Ár virkur | 1954–2016 |
Börn | 2 |
Tónlistarferill | |
Stefnur | |
Hljóðfæri |
|
Útgefandi | Columbia |
Vefsíða | leonardcohen |
Undirskrift | |
Meðal vinsælustu platna hans var I'm Your Man og meðal vinsælustu laga Hallelujah sem margir listamenn hafa gert ábreiður af. Cohen gaf alls út fimmtán breiðskífur.
Síðustu fjögur ár lífs síns gaf hann út þrjár plötur; Old Ideas (2012), Popular Problems (2014) og You Want It Darker (2016) sem kom út 17 dögum fyrir andlát hans. Ein plata af afgangslögum kom svo út árið 2019.
Cohen kom fram á Listahátíð í Reykjavík árið 1988. [1]
Einkalíf
breytaCohen fæddist inn í gyðingafjölskyldu í enskumælandi hverfi Montrealborgar. Hann lauk bókmenntafræðigráðu við McGill háskóla í Montreal. Árið 1960 bjó hann á grísku eyjunni Hydra og kynntist þar norsku konunni Marianne Ihlen ( sem lagið So Long, Marianne er m.a. byggt á). Hann bjó með henni og syni hennar í nær áratug. Marianne dó í júlí árið 2016. Á 8. áratugnum átti Cohen í sambandi við listakonuna Suzanne Elrod og eignaðist soninn Adam og dótturina Lorca með henni. Cohen og Elrod skildu árið 1979. Lag hans Suzanne er þó ekki um hana. Cohen hefur ástundað gyðingdóm en einnig iðkað zenbúddhatrú. Á meðan hann var í búddistaklaustri stal umboðsmaðurinn hans Kelley Lynch sem starfað hafði lengi fyrir hann miklu fé frá honum.
Cohen lést 82 að aldri á heimili sínu í Los Angeles eftir baráttu við krabbamein.
Verk
breytaStúdíó hljómplötur
breytaTitill | Útgáfudagur |
---|---|
Songs of Leonard Cohen | 27. desember 1967 |
Songs from a Room | apríl 1969 |
Songs of Love and Hate | mars 1971 |
New Skin for the Old Ceremony | ágúst 1974 |
Death of a Ladies' Man | nóvember 1977 |
Recent Songs | september 1979 |
Various Positions | desember 1984 |
I'm Your Man | febrúar 1988 |
The Future | 24. nóvember 1992 |
Ten New Songs | 9. október 2001 |
Dear Heather | 26. október 2004 |
Old Ideas | 31. janúar 2012 |
Popular Problems | 22. september 2014 |
You Want it Darker | október 2016 |
Thanks for the Dance | 2019 |
Hljómplötur tileinkaðar honum
breytaTitill | Útgáfuár |
---|---|
Famous Blue Raincoat | 1987 |
I'm Your Fan | 1991 |
Tower of Song | 1995 |
Famous Blue Cheese | 2005 |
Leonard Cohen: I'm Your Man | 2006 |
Cohen Covered | 2008 |
Cohen – The Scandinavian Report | 2009 |
Ljóð
breyta- Let Us Compare Mythologies. 1956.
- The Spice-Box of Earth. 1961.
- Flowers for Hitler. 1964
- Parasites of Heaven. 1966.
- Selected Poems 1956–1968. 1968.
- The Energy of Slaves. 1973.
- Death of a Lady's Man. 1979.
- Book of Mercy. 1984.
- Stranger Music: Selected Poems and Songs. 1993.
- Book of Longing. 2006.
- The Lyrics of Leonard Cohen. 2009.
- Poems and Songs. 2011.
- Fifteen Poems. 2012.
Skáldsögur
breyta- The Favorite Game. 1963.
- Beautiful Losers. 1966.