Ljóstvistur
(Endurbeint frá LED)
Ljóstvistur, ljósdíóða eða ljóstvískaut (enska light-emitting diode, skammstafað LED) er tvistur sem gefur frá sér veikt ljós þegar rafstraumur fer um hann. Ljóstvistar eru oftast notaðir sem gaumljós á rafmagnstækjum, en eru stundum notaðir, margir saman, sem ljósgjafar á heimilum, í sumarbústöðum, hjólhýsum og bílum. Ljóstvistar sem gefa frá sér innrautt ljós eru notaðir m.a. í fjarstýringum fyrir sjónvarp og hljómflutningstæki.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist ljóstvistum.
Heimildir
breyta- Ljóstvistar ljósgjafi framtíðarinnar Geymt 22 janúar 2014 í Wayback Machine Verkís hf