Lína (rúmfræði)
Lína[1] eða bein lína[1] er eitt af grunnhugtökum rúmfræðinnar og á við óendanlega mjótt, óendanlega langt og beint rúmfræðilegt fyrirbrigði. Hin grunnhugtökin eru punktur og slétta. Ekki eru öll strik línur, enn fremur eru ekki allir ferlar línur. Í evklíðskri rúmfræði er aðeins hægt að draga eina línu í gegnum tvo gefna punkta, línan lýsir stystu vegalengdinni á milli punktanna. Þrír eða fleiri punktar sem liggja á sömu línu eru sagðir samlína en kallast annars ósamlína.[2] Tvær línur geta aðeins skorist í einum punkti; tveir stjarfir fletir (plön) skerast í einni línu.
Formleg skilgreining
breytaLína í er mengi allra punkta sem rita má á forminu , þar sem að a og b eru fastir vigrar og x er stiki. a er þá stefnuvigur línunnar, en sé a einvíður vigur, þ.e. rauntala, þá er hún jafnframt hallatala línunnar. b er ennfremur hliðrun línunnar frá núllpunkti. Stefnuvigur er ekki ótvírætt ákvarðaður - hann má alltaf margfalda með rauntölu án þess að stefna línunnar breytist nokkuð.
Skipta má línu í tvær óendanlega langar hálflínur, en línustrik er endanlega langur hluti af línu.
Heimildir
breyta- ↑ 1,0 1,1 „Orðið straight line“. Afrit af upprunalegu geymt þann 5. mars 2016. Sótt 27. febrúar 2010.
- ↑ „Orðið collinear“. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. mars 2016. Sótt 27. febrúar 2010.