Lækjargata 14a
Lækjargata 14a (eða Gamli Iðnskólinn) er timburhús á horni Lækjargötu og Vonarstrætis við hliðina á Iðnó. Það er sambyggt Lækjargötu 14b. Í húsinu er safnaðarheimili Dómkirkjunnar í Reykjavík.
Gagnfræðaskóli Vesturbæjar (Gagnfræðaskólinn við Vonarstræti) var um tíma í húsinu og þar voru landsprófsdeildir fyrir unglinga úr mörgum hverfum Reykjavíkur.
Byggingarsaga
breytaIðnaðarmannafélagið í Reykjavík lét reisa norðurhluta hússins fyrir iðnskóla - og eigin starfsemi. Suðurhlutann lét Búnaðarfélag Íslands reisa. Iðnskólinn í Reykjavík hafði aðsetur í húsinu frá 1906-1955.
Tengt efni
breyta Þessi Reykjavíkurgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.