Lárus Sigurbjörnsson
Lárus Sigurbjörnsson (22. maí 1903 – 5. ágúst 1974) var íslenskur rithöfundur, leikskáld og minjavörður. Foreldrar Lárusar voru Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason og Guðrún Lárusdóttir. Móðir hans var kosin á Alþingi 1930 en lést í bílslysi árið 1938 með tveimur systrum Lárusar.
Lárus útskrifaðist árið 1922 með stúdentspróf í stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík[1] en fór utan til Kaupmannahafnar í nám. Hann lauk prófi í heimspeki við Kaupmannahafnarháskóla[2] og gaf síðan út smásagnasafn á dönsku. Þegar hann snéri aftur til Íslands varð hann formaður Leikfélags stúdenta um tíma[3] og skrifaði leikrit sem komu út 1930.
Lárus þýddi fjölda leikrita, m.a. Hrekkir Scapins (Les fourberies de Scapin) eftir Molière (meðþýðandi), Jóhann úlfstjarna (Johan Ulfstjerna) eftir Tor Hedberg og Jeppi á fjalli (Jeppe paa Bierget) og fleiri gamanleikrit eftir Ludvig Holberg. Auk þess skrifaði hann greinar og bækur um leiklist og leiklistarsögu Íslands.
Á árunum 1954 til 1968 var hann forstöðumaður Minjasafns Reykjavíkur og varð sá fyrsti til að gegna því embætti. Hann beitti sér fyrir stofnun Árbæjarsafns. Árbæjarsafn var fyrsta útisafnið á Íslandi og var opnað árið 1957.[4]
Ritverk (úrval)
breytaÁrtal | Titill | Forlag | Efni |
---|---|---|---|
1925 | Over passet og andre fortællinger | Nyt nordisk forlag (Kaupmannahöfn) | Smásögur |
1930 | Þrír þættir: leikrit | Ísafoldarprentsmiðja | Leikrit |
1949 | 'Móðir mín - tilraun til lýsingar og skilnings,' í Moðir mín (ritstj. Pétur Ólafsson) | Bókfellsútgáfan | Minningar um Guðrúnu Lárusdóttur |
1953 | Tugstafakerfi við bréfafærslu og skrásetningu bæjar- og sveitarstjórnarmálefna | Skjalasafn Reykjavíkurbæjar | Flokkunarkerfi |
1954 | Þáttur Sigurðar málara: brot úr bæjar- og menningarsögu Reykjavíkur | Helgafell | Ævisaga Sigurðar málara |
1970 | Sire: frjálslega með farin söguleg gleði um danska stórmaktstíð á Íslandi í þremur þáttum | Gleðir | Leikrit |
1970 | Stórifoss strandar: pólitísk gleði í 3 þáttum | Gleðir | Leikrit |
Tilvísanir
breyta- ↑ Morgunblaðið, 2. júlí 1922, 4.
- ↑ Tíminn, 24. maí 1924, 84.
- ↑ Stúdentablaðið, 6.8 (1929): 110.
- ↑ Saga Minjasafns Reykjavíkur, http://www.minjasafnreykjavikur.is/desktopdefault.aspx/tabid-4234 Geymt 15 júní 2013 í Wayback Machine
Heimildir
breytaSteinunn Bjarman, 'Lárus Sigurbjörnsson: safnafaðir Reykjavíkurborgar,' í Söguspegill: afmælisrit Árbæjarsafns (Reykjavík: Árbæjarsafn, 1992), 30-48.