Kinnarfjöll eru fjallgarður í Suður-Þingeyjarsýsla sem liggur samsíða Kaldakinn og afmarkar hana að vestanverðu. Kinnarfjöll ná frá Ljósavatni í suðri til Nípá í norðri. Þau sjást víða að enda er um talsvert háan fjallgarð að ræða. Þau blasa við frá Húsavík og Aðaldal og einnig sést í efstu tinda þeirra úr Mývatnssveit. Sunnan frá Krossi og rétt norður fyrir Þóroddsstað rísa fjöllin nokkuð aflíðandi uppfrá sveitinni fyrir neðan. Þegar norðar dregur verða fjöllin brattari auk þess sem hlíðar þeirra eru frekar stöllóttar sem gerir það að verkum að skriðuföll eru fremur sjaldséð.

Kinnarfjöll
Bæta við mynd
LandÍsland
SveitarfélagÞingeyjarsveit
Map
Hnit65°48′20″N 17°42′33″V / 65.8056°N 17.7092°V / 65.8056; -17.7092
breyta upplýsingum

Tenglar

breyta
   Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.