Kering
Kering fyrst Établissements Pinault síðan Pinault-Printemps-Redoute (PPR), er frönsk fyrirtækjasamsteypa, sem meðal annars á vörumerkin Gucci, Yves Saint Laurent, Bottega Veneta, Balenciaga, Boucheron og Alexander McQueen. Kering Eyewear (30% í eigu Richemont) framleiðir gleraugu fyrir vörumerki innan og utan fyrirtækjasamsteypunnar.
Kering | |
Stofnað | 1962 |
---|---|
Staðsetning | París, Frakkland |
Lykilpersónur | François-Henri Pinault |
Starfsemi | Lúxus, tíska, leðurvörur, skartgripir, úrsmíði |
Tekjur | €13,100 miljarðar (2020) |
Starfsfólk | 36.646 (2020) |
Vefsíða | www.kering.com |
Frá árinu 2005 hefur François-Henri Pinault stýrt fyrirtækinu sem tók upp heitið Kering árið 2013. KER vísitalan er hluti af CAC 40[1].