Karólína Eiríksdóttir
Íslenskt tónskáld
Karólína Eiríksdóttir (fædd 1951) er íslenskt tónskáld. Hún lærði í Tónlistarskólanum í Reykjavík og síðar við University of Michigan. Þar tók hún meistarapróf í tónlistarsögu- og rannsóknum árið 1976 og tveimur árum síðar, eða árið 1978, hlaut hún sömu gráðu í tónsmíðum. Ári síðar flutti hún aftur til Íslands og hefur síðan þá unnið sem tónskáld sem og kennt við ýmsa tónlistarskóla.[1]
Óperur
breyta- Någon har jag sett ('Mann hef ég séð') (1988, texti: Marie Louise Ramnefalk)
- Maður lifandi - Óperuleikurinn um dauðans óvissan tíma (1999, texti: Árni Ibsen)
Heimildir
breyta- ↑ Ísleifsson, Atli (29. maí 2015). „Karólína Eiríksdóttir bæjarlistamaður Garðabæjar 2015 - Vísir“. visir.is. Sótt 1. maí 2024.