Kambur hf.
Kambur hf. er íslenskt fiskvinnslufyrirtæki staðsett á Flateyri á Vestfjörðum. Kambur er stærsta atvinnufyrirtækið á Flateyri en þar starfa um 120 manns, liðlega 50 sjómenn og hinir í landi.[1][2]
Kambur hf. | |
Rekstrarform | Hlutafélag |
---|---|
Staðsetning | Flateyri, Ísland |
Lykilpersónur | Hinrik Kristinsson, forstjóri |
Starfsemi | Fiskvinnslufyrirtæki |
Starfsfólk | 120 |
Sala á kvóta
breytaÞann 17. maí 2007 var tilkynnt að Kambur væri nú í samningaviðræðum um að selja frá sér stóran hluta kvóta sinn og fiskveiðiskip en Kambur gerði þá út samtals 5 báta.[1][2]
Daginn eftir, þann 18. maí 2007, var haldinn starfsmannafundur fyrir starfsmenn Kambs. Miklar áhyggjur voru fyrir Flateyri ef kvótinn væri seldur.[3] Á fundinum var starfsmönnum félagsins greint frá því að eigendur Kambs hafi ákveðið að hætta allri starfsemi og selja allar eignir félagsins.[4]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 BB.is:Kambur á Flateyri að selja kvóta og skip, skoðað 27. maí 2007
- ↑ 2,0 2,1 Mbl.is: Kambur á Flateyri að selja kvóta og skip, skoðað 27. maí 2007
- ↑ Vísir.is: Bíða fregna af Kambi á Flateyri, skoðað 27. maí 2007
- ↑ Vísir.is: Kambur hættir útgerð og fiskvinnslu á Flateyri, skoðað 27. maí 2007