Kalli litli könguló
Kalli litli könguló er barnagæla til er á fjölmörgum tungumálum um könguló sem í íslensku útgáfunni fjallar um tilraun köngulóarinnar „Kalla“ til að klifra upp á vegg. Í þeirri ensku fjallar hún hinsvegar um klifur hans upp tepott. Hinir ýmsu hlutar vísunnar eru svo oft táknaðir með hreyfingum sem tákna aðstæður Kalla.
- Kalli litli könguló
- klifraði upp á vegg.
- Svo kom rigning og Kalli litli féll.
- Upp kom sólin og þerraði hans kropp.
- Kalli litli könguló
- klifraði upp á topp.