Juneau
höfuðborg Alaska
(Endurbeint frá Juneau-sveitarfélag, Alaska)
Juneau er höfuðstaður Alaska fylkis Bandaríkjanna og hluti af Juneau-sveitarfélaginu. Í borginni og sveitarfélaginu búa rúmlega 32.000 manns (2020). Borgin er nefnd eftir gullgrafaranum Joe Juneau.
Juneau | |
---|---|
Hnit: 58°18′00″N 134°24′58″V / 58.30000°N 134.41611°V | |
Land | Bandaríkin |
Fylki | Alaska |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Beth Weldon |
Flatarmál | |
• Samtals | 8.429,64 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 10 m |
Mannfjöldi (2020) | |
• Samtals | 32.255 |
• Þéttleiki | 4,61/km2 |
Tímabelti | UTC−09:00 (AKST) |
• Sumartími | UTC−08:00 (AKDT) |
Póstnúmer | 99801-99803, 99811-99812, 99821, 99824 |
Svæðisnúmer | 907 |
Vefsíða | juneau |
Kanadísku landamærin eru rétt austur af borginni, þ.e. Breska-Kólumbía. Engir vegir tengja Juneau við aðra hluta Alaska og meginland Norður-Ameríku. Bílferjur eru hins vegar til staðar sem og flugsamgöngur.
Fiskveiðar og ferðaþjónusta eru mikilvægar atvinnugreinar. Skemmtiferðaskip eru algeng sjón á sumrin.