Juan Gerardo Guaidó Márquez (fæddur 28. júlí 1983) er venesúelskur verkfræðingur og stjórnmálamaður. Guaidó er forseti löggjafarþings Venesúela (spænska: Asamblea Nacional) og í janúar 2019 lýsti hann sig sem forseta landsins til bráðabirgða sem andsvar við Nicolás Maduro, núverandi forseta, vegna efasemda um lögmæti kosningar hans árið 2018[1] og óánægju með stjórn hans og efnahagsástand landsins. Mörg ríki, meðal annars Bandaríkin, Kanada og Brasilía, viðurkenndu Guaidó fremur en Maduro sem lögmætan forseta Venesúela á næstu árum.[2]

Juan Guaidó.

Tilvísanir

breyta
  1. Stefán Rafn Sigurbjörnsson (23. janúar 2019). „Trump segir leið­toga stjórnar­and­stöðunnar rétt­mætan for­seta Venesúela“. Vísir. Sótt 25. janúar 2019.
  2. „Lof­ar Maduro friðhelgi fari hann frá“. mbl.is. 25. janúar 2019. Sótt 25. janúar 2019.