Sigurður Ólafsson - Sjómannavalsinn
Sigurður Ólafsson syngur Sjómannavalsinn er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1953. Á henni syngur Sigurður Ólafsson lögin Sjómannavals og Stjörnunótt. Hljómsveitina skipa Bjarni Böðvarsson, Aage Lorange og Einar B. Waage. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.
Sigurður Ólafsson syngur Sjómannavalsinn | |
---|---|
IM 20 | |
Flytjandi | Sigurður Ólafsson, Bjarni Böðvarssonar, Aage Lorange, Einar B. Waage |
Gefin út | 1953 |
Stefna | Sönglög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Lagalisti
breyta- Sjómannavals - Lag - texti: Svavar Benediktsson - Kristján frá Djúpalæk - ⓘ
- Stjörnunótt - Lag - texti: Þórður G. Halldórsson - Loftur Guðmundsson - ⓘ
Lögin
breytaLögin Sjómannavals og Stjörnunótt voru send inn í danslagakeppni SKT árið 1953 og fengu bæði verðlaun í flokki gömlu dansanna. Stjörnunótt fékk 3. verðlaun en Sjómannavals vann keppnina og varð eitt vinsælasta íslenska lag síðustu aldar. Til marks um vinsældirnar hefur valsinn fengið ákveðinn greini í huga þjóðarinnar og heitir nú Sjómannavals-„inn” í stað hins hógværa heitis sem það bar upphaflega.
Sjómannavalsinn
breytaHið magnaða ljóð Kristjáns frá Djúpalæk við lag Svavars Benediktssonar:
- Það gefur á bátinn við Grænland
- og gustar um sigluna kalt,
- en togarasjómanni tamast það er
- að tala sem minnst um það allt.
- En fugli, sem flýgur í austur,
- er fylgt yfir hafið með þrá.
- Og vestfirskur jökull, sem heilsar við Horn
- í hylling með sólroðna brá,
- segir velkominn heim, segir velkominn heim,
- þau verma hin þögulu orð.
- Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim.
- Þá er hlegið við störfin um borð.
- En geigþungt er brimið við Grænland
- og gista það kýs ekki neinn.
- Hvern varðar um draum þess og vonir og þrár,
- sem vakir þar hljóður og einn?
- En handan við kólguna kalda
- býr kona, sem fagnar í nótt
- og raular við bláeygan, sofandi son,
- og systur hans, þaggandi hljótt:
- Sértu velkominn heim, sértu velkominn heim.
- Að vestan er siglt gegnum ís.
- Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim.
- Og Hornbjarg úr djúpinu rís.